Minnisblöð úr hversdagsdýpinu

Minnisblöð úr hversdagsdýpinu

mánudagur, nóvember 24, 2008

Refur - ný ljóðabók eftir mig!

Svik og lygar: Helsti veikleiki okkar eða drifkraftur?

Refur eftir skáldið Emil Hjörvar Petersen er komin út hjá skáldafélaginu og grasrótarforlaginu Nykri. Lævísi, svik og lygar eru yrkisefnin í þessari kraftmiklu ljóðabók. Af innsæi nýtir Emil refstáknið og skapar ádeilukennt verk sem hreyfir við lesendum með heildstæðu myndmáli og glöggri sýn á helstu veikleika okkar. Refurinn smýgur sér inn í ljóðin úr samtímanum, goðsögum, bókmenntum, dýrafræði, barnasöngvum – hann er alls staðar.

Svik og lygar eru sérstaklega áberandi þessa dagana. Er raunveruleikinn byggður á lygum og stungum í bak?

Hvað ætlast hver einstaklingur fyrir, hvernig nær hann takmörkum sínum? Með því að svíkja aðra? Eru svik og lygar drifkraftur mannverunnar til að lifa af eða einfaldlega hið stóra niðurrifsafl? Emil beinir meðal annars sjónum að spurningum af þessu tagi og skapar þéttofinn ljóðaheim sem hristir upp í sjálfsmyndum.

Úr ringlureiðinni yfir í svikin. Refur er önnur ljóðabók Emils en í fyrra sendi hann frá sér Gárungagap sem fjallaði um ringulreiðina. Bókin fékk mjög góðar viðtökur gagnrýnenda:

„Hér er vel ort. Það er því óhætt að vænta nokkurs af Emil í framtíðinni.“

Skafti Þ. Halldórsson, Morgunblaðið

„Skáldleg sýn, mikið hugarflug, áflog við Braga.“

Sigurður Hróarsson, Fréttablaðið

Hægt er að nálgast eintak með því að senda mér tölvupóst (emil@hi.is) eða hringja í mig (869-8391); bókin kostar 2000 krónur. Svo er hún til sölu í helstu bókabúðum. Ég á eitthvað eftir af fyrri bókinni, Gárungagapi, sem kostar núna 1000 krónur beint af mér.

fimmtudagur, ágúst 14, 2008

!

Afsakið sumarfrí bloggs. En ég verð að deila því að ég fékk vinnu á Forlaginu! Er reyndar loksins kominn í dálítið sumafrí, en næst taka við lagfæringar á ljóðahandriti og svo Svíþjóðarferð, afslöppunarferð. Kem heim í byrjun september, þá hef ég störf. Og þá mun ég verða virkari bloggari.

mánudagur, júlí 07, 2008

Laika, taðkvarnir, rauðskeggjað, lifandi ísbirnir, góðhjörtuðum faraó úthýst, pendúllinn minn, svifdýr, laukhringir, komma, strik, vottur af skítugum samfestingum, og engin hugmynd að fyrirsögn

Fjárans erfiði að finna tíma til þess að skrifa, þessa dagana það er að segja. En ég nýti þær stundir sem gefast. Mig vantar nokkur náðarhögg upp á til að geta barið saman fyrsta uppkast að nýju ljóðabókinni - ölluheldur gert það alveg klárt, þar sem ég er búinn að vinna að henni síðan síðasta kom út. Á klósettinu í vinnunni uppgötvaði ég hvernig best væri að flétta síðari hlutann betur saman. Skipti sköpum. Skrifaði á post-it miða. Músan læðist að manni þegar síst varir.

Minnir á þegar ég hnýtti lausu endana á Gárungagapi í bílnum, þegar ég beið í þrjá tíma á Smiðjuveginum eftir að fá að skipta yfir á vetrardekk. Skítugur snjór, grár dagur, læti, Bic-penni, tvær kvittanir, svangur, þurfti að pissa og útvarpið bilað.

Innblástur er ekki til. Útblástur í besta falli.

Fyrir utan öll handritin og erlendu bækurnar sem ég les í vinnunni, liggja nokkrar heima fyrir: Flautuleikur álengdar, Ljóðasafn Sigfúsar, Vansæmd, Sólskinsfólkið, Mírgorod. En, alas, ég held ég verði að fara að hraðlesa þetta. Því mig langar að lesa annað og miklu meira. En sumarið einkennist af örlitlum tímaskorti - já þetta er smá væl. Lok sumars, eftir 10 daga Svíþjóðarfríferð og endurnæringu, verður góður tími, eða enn betri tími. Sumarið er búið að vera hið fínasta, fyrir utan langar vinnutarnir.

---
Tepruskap og sinnuleysi ríkisstjórnarinnar eru engin takmörk sett. Engin. Hvert ruglið á fætur öðru. Rauði hitinn blossar upp í mér á stundum. Ef sólarhringurinn væri lengri og ef ég þyrfti ekki að sofa, myndi ég eflaust stökkva aftur í pólitíkina. Hvað í sandalanum er að Samfylkingunni, krataræflaflokki? Það fór alltaf í mínar fínustu þegar þau kenndu sig við vinstri eftir hentisemi. Enda er það lykilorðið til þess að standast kröfur flokksins: Hentisemi.

---
Viðbót:
Mér datt í hug að blóka eilítið um nágranna og hjólakaup, en Kristín er búin að skrifa stórskemmtilega færslu um bæði málin.

þriðjudagur, júní 10, 2008

Gúlp

Búið að vera eilítið röff síðustu daga. Forlagið 8-16 og Mál og menning 17-22. Reyndar er þessi háttur á mánu- þriðju- og miðvikudaga aðra hverja viku. Vinnan á Forlaginu er geggjuð, frábær, krefjandi, gefandi ... já! Manni er treyst fullkomlega þannig að ábyrgðartilfinningin er strax orðin töluverð.
Núna er kvöldvaktin meira en hálfnuð í M&M og það hefur tekið mig tvo tíma að skrifa þessa færslu. Túristar, útskriftagjafir, túristar, einstaka viðskiptavinur að kaupa eitthvað áhugavert, túristar.
Smá húmor verður að halda manni uppi. Þannig að:


Voða lærður Wulff (ég hló) ...

Og voða, voða súr Wulff (ég hló meira) ...

þriðjudagur, júní 03, 2008

Svona almennt

Hugarró hefur svifið á mann jafnt og þétt þessa daga sem hafa liðið frá ritgerða- og prófatörn. Ég og Kristín rúntuðum suður á land síðustu helgi og gistum í tvær nætur á Skaftafelli. Inni í myndinni var Jökulsárlón, Fjaðrárgljúfur, Hali í Suðursveit og margt annað. Ótrúlega gott að fara aðeins út á land og lofta út.

Allar einkunnir eru komnar í hús og ég er þar af leiðandi búinn að fá námslánin - sem er sweet. En vá, þetta er örugglega ein af betri (ef ekki besta) önnin mín á öllum mínum ferli í háskólanum. Aldrei í BA-náminu fékk ég svo háar einkunnir. Og Kristín brilleraði líka í BA-ritgerðinni sinni. Þannig að allir dagarnir, næturnar, kaffibollarnir og pizzurnar hafa skilað sínu.

Í fyrramálið hef ég svo störf hjá Forlaginu sem einskonar "intern". Ég viðurkenni að ég er með fiðring í maganum, en ég held það sé meira tilhlökkun en stress, vona það. Bókaútgáfa er sá vinnustaður hefur verið hæst í huganum síðastliðin ár.

Skrifin ganga ágætlega. Sendi örugglega handritið að nýju ljóðabókinni á yfirlesara eftir mánuð eða svo. Ætla ekki að ræða það meira, þetta kemur þegar það kemur.

Í gær birtist fyrri hluti af grein á Kistunni eftir mig. Síðari hlutinn birtist síðar í vikunni.

laugardagur, maí 24, 2008

Skák

Mér finnst eins og það séu aldir alda síðan ég settist við skákborð, allavega nokkur ár síðan ég tefldi af viti. Mig klæjar í fingurna. Ef einhver vill skora á mig í skák, endilega sláið á þráðinn - í síma, e-mail, msn eða kommentakerfi - og ég skal taka borðið fram. Ég er alveg til í að tefla upp á eitthvað; kaffibolla, bjór eða ljóðabók.

föstudagur, maí 16, 2008

Blóðljóðablöndunarkvöld Nykurs

Á tímum þegar ráðamenn fórna höndum, þegar Öryggisráð virðist skipta öllu máli, og þegar matar- og bensínverð vex samhliða græna litnum, er ekkert sem stöðvar skáldin í að bjóða upp á ókeypis menningu. Skáldafélagið Nykur stendur fyrir þéttri og öflugri ljóðadagskrá næstkomandi sunnudagskvöld, 18. maí, á efri hæð Barsins (með stóru b-i). Á boðstólum eru reynd skáld, hálfreynd skáld og fersk skáld; sannkölluð blóðljóðablöndun.

Nykurskáld:
Emil Hjörvar Petersen
Guðmundur Óskarsson
Halla Gunnarsdóttir
Oddur Sigurjónsson
Sigurlín Bjarney Gísladóttir
Sverrir Norland
Toshiki Toma

Gestaskáld:
Ísak Harðarson
Kristján Ketill Stefánsson

Skáldskapurinn hefst kl. 21:00 og verið öll velkomin!